23.06.2007 14:34:33 / pixie

RIP

 

Dolf van Wyk 

Þann 17 Júní fékk ég sms frá vinkonu minni Monique sem býr í Namibiu og í því stóð: "hæhæ.. Ég hef slæmar fréttir. Pabbi Deuné hefur verið skotinn þann 14 júní, hann er dáinn ekki nema 39 ára gamall. Það beið einhver eftir honum í bílskúrnum hans og þegar hann keyrði bílnum að varð hann skotinn 4 sinnum. Mamma Deuné heyrði ekki skotinn... Deune var í prófum þegar hún fékk fréttirnar og hún kom til Luderitz. Það er ekki enþá búið að hafa athöfnina... ég vildi baraa segja þér þetta því annars hefðiru aldrei vitað þetta." !!!

Ég veit ekki um ykkur en mér finnst þetta hræðilegt og ógeðslegt að einhver manneskja skildi detta þetta í hug. Núna á Deune og bróðir hennar engan pabba. Eins og þessi fjölskylda var fullkomin í augum mínum. Þessi maður var yndislegur og gerði ekkert nema að vera góður.

Deune var besta vinkona mín meðan ég bjó úti og mig langar mest að öllu að fara til hennar núna og styðja hana núna. Hún er frábær manneskja og á það ekki skilið að missa pabba sinn. Ég vil hjálpa henni en ég get það ekki. Þetta er svo sorglegt. Ég get nú bara ýmindað mér hvernig þetta er að missa pabba sinn og það er nokkuð erfitt fyrir mig að hugsa bara útí það. Mig langar að sýna stuðning minn til hennar með þessu bloggi. 

-Bryndís 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 01:08:58 / pixie

Namibia..!

Ef ég ætti eina ósk væri það að fara aftur.

Ég hef alltaf regulega fundið fyrir svona þrá til þess að fara aftur út til Namibíu. Ég get ekki sleppt þessu. Ég bjó þarna fyrir 5 árum og ég bjó þar í 8 ár :S. Það er komið svo langt síðan og ég get ekki.. hvað getur maður sagt? Sleppt þessu? Þetta er óþæginlegt að geta ekki fengið að fara aftur út þegar mig langar til þess. Ég sakna þess svo innilega mikið ég get ekki hætt að hugsa um gamla bæinn minn Luderitz. *andvarp* :( vinir mínir sem ég er enþá í sambandi við, samt ekkert mikið... bara svona sms einstakasinnum. Viljiði vorkinna mér?? :(
Ég get talað endalaust um að fara þangað út aftur. En ég ætla ekki að gera það. Ég held að fólki finnist það ekkert gaman að lesa það. Held ég. En anyways vildi bara tjá mig aðeins hér því mér leiðist og langar aftur út. :(

-Bryndís

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 16:21:54 / pixie

Hey Y'all

Jæja, þriðja blogg tilraun. Ég ætla að nýta tækifærið og blogga smá á meðan ég er í hveragerði yfir helgina. Ég ætla nú líka að ræna að fá sjálfan mig til þess að læra ég veit samt ekki hvort ég muni standa við það en ég held ég verði þá bara að bíða og sjá. Ég er hinsvega búin í þremur prófum og ég á eftir 2 enska og franska íkk. Þetta eru prófin sem mér kvíður mest fyrir og þau eru síðust, það er náttúrulega bara ekkert sniðugt á neinn hátt.

Hvernig er fólk annars að fíla útlitið? Ekki bara ágætt, ég gerði bannerinn svona nokkurnvegin sjálf. Það er að segja setti myndina inná og skrifaði Pixie. Síðan leiddist mér svo síðustu helgi að ég gerði annann banner fyrir síðuna sem ég mun birta síðar en það tók mig kannski aðeins lengri tíma til þess að gera. Ég veit ég veit, ég er einmanna, ég bý til bannera þegar mér leiðist.

Hvað á að gera um helgina? Ég verð nú bara að hjálpa mömmu við að planta niður gras, hljómar illa hehe... en þetta er ekki marijana þetta er nú bara torfur sem mamma er að fara að setja niður. Ég er nú ekki búin að ákveða neitt annað sem ég mun gera þessa blessaða helgi en það verður víst bara að koma í ljós hvað gerist næst.
Mig langar svo óendanlega mikið í djamm og skemmtun en það verður víst að bíða þangað til eftir prófin en þá er einmitt Eurovision, er þá ekki kallað eftir einu típísku íslensku Eurovision Parteyh..? Hver mun halda partý? Er mér boðið? *englasvipur*

Mig langar að deila hér með ykkur einu mjög ómerkilegu atviki, ég settist í tölvustólinn áðan og ég var að draga hann með mér, bara svona sem maður gerir á tölvustólum og viti menn annað hjólið af fimm brotnaði af þannig að núna er stólinn bara fjórfættur =) 

En það var nú ekki meira í bili... Bryndís og fjórfætti stóllinn kveðja

 

-Bryndís 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 14:25:57 / pixie

Frk. Ferska!

Var að vakna og er núna ferskasta manneskjan í heiminum. . . . NOTT!
Það er komin Sunnudagur og ég er ekki búin að læra neitt undir prófið sem er á morgun, íslenska þetta verður létt. Mest bara smásögur sem ég hef lesið og kann. Ekkert stress komið í mig enþá fyrir prófin. Ég er sallaróleg eins og er, hver veit hvernig ég verð á morgun.

Skemmtilegast rúntur sem ég hef upplifað var á föstudaginn. Mesta snilld hingað til! Fyrir þá semm ekki vita þá fór ég í eltingarleik og feluleik... á bílum sem var það mest skemmtilegasta sem ég hef gert á bíl :D ooooof gaman. Eitthvað sem ég hef ekki gert og ég ætla mér að gera aftur. Þetta var semsagt ég, Erla og Halla til þess að byrja með. Við vorum að keyra á kringlumýrabrautinni og rákumst á stráka í öðrum bíl sem voru til í smá Gamangang. Viðvorum komin uppí kópavog svo breiðholt svo reykjavíkur bær aftur svo árbær. Það fynda var að strákurinn sem var að keyra í hinum bílnum, hann var með mér í íslensku... :') oof gott. og við komumst að því seinna að þeir hétu Garðar(íslensku kallinn), Grétar og Kalli. Eftir að við skutluðum Höllu heim fórum við yfir til þeirra og rúntuðum allt kvöldið til svona 4. Ég væri alveg til í að gera þetta aftur og ég var komin með verki í magan eftir að hafa hlegið svona mikið. Ég mæli svolítð með þessu, kannski ekki hvern sem er því það eru ekkert allir sem muna taka þessu vel. En þeir sem gera það... GAMAN!! =D

- Bryndís


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 17:08:58 / pixie

Endurlífgun

Hún er á lífi, þessi síða var orðin löngu dauð og ég er að reyna að lífga hana við núna. Það gengur svona sæmilega.

Ég ákvað að fara aftur yfir í blogcentral, bara því að mér finnst það svo þæginlegt. Þæginlegra en hinar bloggsíðurnar.

Hef ekkert að segja í augnablikinu en er semsagt bara að láta vita að hún er lifnuð við aftur! :)

-Bryndís


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 23:28:39 / Bryndís

Enurfædd?!?

Ég hef verið að velta því fyrir mér að byrja aftur að blogga á þessari síðu ég fékk mér sko nefnilega smá pásu. En hvað finnst fólkinu um það að ég byrji aftur?
Ég hef líka tekið eftir því að það er alveg enþá fólk að fara inná þessa síðu en bara gaman að því ég ætla að gá hvort það gangi upp að halda áfram með hana eða bara hvort að "nennan" sé í lagi;) Síðan ein önnur pæling er að breyta útlitinu aðeins, mér finnst þessi gulur kannski aðeins of Gulur en kannski ég býði bara með það eftir páska, Gulur er nenfilega páska liturinn ef þið vissuð ekki.
En hvernig útlit ætti maður að fá sér? einhverjar hugmyndir?
Fólk er búið að vera að segja mér að ég sé líka Janis Joplin og ég verð nú bara að segja að mér finnts ég bara enfgan vegin ekkert lík henni só sorry bara no way ég skal gefa ykkur smá sýni hvað við erum ekki líkar og svo skulið þið segja mér hvað ykkur finnst, okei?

neip vitið ég bara sé ekkert sem er líkt við okkur en ég meina sumir eru mis blindir en aðrir. En verð samt að segja það að hún er góð saungkona og tónlistamaður.

Yeeees Greandfather... en´já þetta verður stór helgi eða ég meina mikið að gera er búin að segja nokkrum að ég mundi koma eða gera eitthvað með þeim og allir úr sithvoru áttini Lilja Guðrún frænka, strákarnir og Þorgils Haukur svo var það að fara niðrí bæ með Pineapples og svo einnig Hún Erla mín.. þannig að hvað verður gert?? hmm verður bara að koma í ljós bara þá.. en ég held að ég sé búin að skrifa nó eða svona nokkuð ahh andskotin ætla að hætta að tjá mig :D blesss

-Bryndís:!:


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 23:35:00 / pixie

jebb jebb

jæja eins og allir vita þá komst hún Silvía okkar áfram í Eurovision bjóst maður nokkuð við öðru? allavega fékk hún heil 70% atkvæði þjóðarinnar sem er hrein snilld.

allavega er ég núna í hveragerði hjá mömmslu að gera ekki neitt en er samt búin að vera ágætlega dugleg sko að gera t.d. íslensku verkefni og svo var ég og mamma að þæfa ull haha.. það er nokkuð skondið sko.. er að búa til vesti en þið vitið mjöög líklega ekki hvað það er að þæfa ull ég vissi það nú ekki heldur fyrr en fyrir 2 vikum þegar ég var hérna síðast og ferði alveg stórglæsilegar griflur en ég ætla ekki að tala neitt meira um þetta þið vitið ekkert hvað þetta er þannig.

já þegar ég kom hingað í gær:D:D þá afhenti mamma mín mér iPod :D veijj *gleði*gleði* svona 30 GB eitthvað sem er hægt að setja inn bíæomyndir og eitthva rugl ég er sko enginn sérfræðingur í þessu. en allavag á ég eftir að setja fult af einhverjum lögum inná og á eftir að nauðga þessu svo fast í rassgatið að það verður ekki venjulegt :haha: síðan gaf mér þennann geggjaða bol sem stendur Cheers á.. hún var sko í Bostan þar sem Cheers þættirnir voru teknir upp og hún var á barnum og vááá :D hehe langaði að sjá þetta því að ég eeeelska þessa þætti svo skemmtilegir.. allavega

Ég er búin að vera mesta ofvirk í kvöld ég fékk nammi hendurnar og ég bara trilltist þetta hefur alsrei komið fyrir mig áður ég verð aldrei ofvirk af nammi en núna sjiiit ég gat ekki verið kurr 8| ég með nýja iPodinn minn að hlusta á músik og singja sem ég geri aldrei haha eða upphátt en allavega var að hlaupa fram og til baka til það er að segja inn í stofu ig inn í herbergi til mín og váá sko þetta var samt gaman þrátt fyrir það að þetta var bara ég í þessu flippi.. æjj had to be there...

en vitið ég held að þetta sé komið held ég eða ég veit það ekki júúú segjum það bara... Bless lömbin mín:D

°Bryndís°

setja þessar myndir inná því að Cheers er snilld :D


» 16 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 00:32:22 / pixie

Gul?

jæja jæja hvernig líst fólkinu a síðuna núna er búin að gera þennan ömurlega banner hehe það stendur meinesja Muu á honum jeee ég gerði hann.. an allavega vildi bara segja ykkur frá nýja lúkinu ;)

annað sem er líka nýtt er 70# listinn minn og Lindu R. þið verðið að skoða hann. Þetta er mesta snilld:)

svo einnig er ég að klára að gera vini.. en þið megið alveg skoða það sem er komið. Þetta er allt í vinnslu.

Síðan kvet ég ykkur að kíkja á nýju síðuna hjá mér og Lindu systur minni :) hún er í vinnslu en þetta er allt að koma :) takk takk

blesss

°Bryndís°


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 20:06:38 / pixie

Valentínusardagurinn!

 

ég er sko ekki búin að borða neitt í allan dag nema brauðsneið með osti í morgun og svo ekkert núna og svo finn ég góðu matar lyktina inní eldhúsi og ég skal sko segja ykkur það að hún er að alveg að fara með mig og maginn á mér er alveg öskrandi á matt úúú mér heyrist að þetta sé alveg að verða tilbúið... :P

en jæja hvað segir fólið? ekki bara hresss

jæja jæja svona er það að ég er ein á Valentínusardag.. engin við hlið mér.. búhú.. nei djók ekki alveg það despret en jæja hver er hjá ykkur? enginn spes til þess að kúra með því í kvöld? :P Fékk einhver rós frá maka sínum?

úúúúú, MATUR!! híhí ég vera svangur ég vera fá mér að borða JESS

bless lömbin mín

°Bryndís°

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 23:36:55 / pixie

Hellú!

Þið verðið að afsaka ég hef ekki nent að blogga neitt uppá síðkastið... en allavega það er samt allt búið að vera ágætt hjá mér eins og á ammælisdagin var ágætt fór í skólan og bara venjulegur dagur en þegar ég kom heim þá var haldið uppá smá svona kaffi boð handa ömmu og afa hehe... og svo kom Helgu Láruz í heimsókn það var gott að hafa þig Helga mín bíddu hvern er ég að blekkja það var frábært! :)

Á föstudaginn var farið útað borða á Pizza Hut heeeevý gaman :D með einhverju ómerkilegu fólki okei kannski alveg svo ómerkilegt það voru allavega þau Karen, Arndís, Hrefna, Benni, Óli(græni), Lára M, Steeeeefán, Arnar og Matthías og svo var Árný og Tinna á næsta borði en þær fóru eiginlega strax í eitthvað leimass Partý en jæja eftir þessa unaðslegu Pizza Hut veislu var ákveðið að fara til Óla í smá svona tjillerí sem var tók heila öld að komast í því að fyrst þurftum við að fara í vestur bæin frá smáronum til Benna því að hann þurfti að ná í eitthvað og þaðan var farið til Óla einhverstaðar hjá bústaðaveginum það tók helling af tíma. En síðan var komið að aðfangastað og það var bara nett gaman mundi ég segja :D var þar til eitthvað 2 eða í einhverja þá áttina...(*pæling* þetta er leiðinlegt blogg en ég er ekki alveg að tíma að stroka þetta út svo ég held bara áfram)

í gær var Ball!!! :D:D brjálað gott fólk það var snilld, skemmtunin var í hæðsta stigi! :P spurjið bara alla sem voru þarna :) þið vitið ekki hverju þið mistuð af ef þið voruð ekki þarna. Ég vorkinni ykkur bara, þið eruð aumingjar!

En hér er ein pæling... þegar þið hafið ekkert að gera. þhvað eru þið að gera? ég meina sko maður er annað hvort að hanga í tölvuni þá meina ég hanga eða er að glápa á sjónvarpið. Ástæðan fyrir þessari pælingu er sú að ég gerði eitt merkilegt um daginn ég sat uppí rúmmi að hlusta á mína músik ekki að horfa á sjónvarp og ég sat semsagt uppí rúmmi og mér leið bara nett vel sko og fór síðan að krota í bókina mína og síðan fór þetta í kertaljós og kveikti síðan í reykelsi sem ég fékk í ammælisgjöf og vildi semsagt bara segja ykkur að þetta er... ég veit ekki hvað ég á að segja en allavega ég mæli með þessu. prófið ;) hehe

Ég Held að pestin sé að ná mér.. ég er búin að vera með hálsbolgu núna í viku og kvef í 2 daga og þetta er ekki beinlenis það besta í heimi :S þetta er eitthvað sem ég mæli alls ekki með ojj bara og svo sefur maður ekkert er alltaf að vakna það kemur nú reyndar fyrir á hverju einöstu nótt en þetta var öðruvísi því að nú var ég með óendenlegan verk í hálsinum en loks náði ég sofna eftir að hafa fengið sér eitthvað gott fyrir hálsin.

Finnst ykkur þetta ekki bara orðið hæfilega langt, samt ekkert of langt bar svona sæmó haggi bara.. ég er allavega hætt þessu rugli veriði sæl lömbin mín :P

°Bryndís°


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 18:09:32 / pixie

á morgun

Stóri dagurinn á morgun! ja ég verð 17 ára og get ekki beðið. Á morgun þarf að vera °besti afmælisdagur í heimi annars er ég bara dauð eða eitthvað. En allavega ég svo glaður núna :D:D:D:D:D:D:D:D:D

nenni ekki að skrifa meira því að ég veit líka ekki hvað ég á að skrifa!! okei bleeeeeeeeeeessss!!

°Bryndís°


» 15 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 19:46:56 / pixie

3 dagar.

Já það eru 3 dagar þar til ég verð 17 ára og ég skal segja ykkur það að mér er farið að hlakka til því að þá get ég fengið mér þetta bílpróf :) þótt ég tek það ekki alveg strax á deginum en ég gerði það nú samt fljótlega.. vona ég.

:!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!::!:

Ég nú stödd í hveragerði eins og er og ég ætlaði að skella einu bloggi hérna inná áður en ég færi með rútunni í bæinn klukkan 8, en núna er ég bara í vandræðum um hvað ég ætti að blogga, jú ég veit hvað ég ætla að segja.

okei ég var í vinnunni og allt í lagi með það en já kemur einhver gaur inn svona um 20 ára aldur en jæja biður um inneign og eitthvað og Jóhanna fer og nær í það en á meðan þá stóð ég bara þarna sakleysislega í náttbuxonum mínum og hann segir hey þetta eru eins og náttbuxur og þá segi ég já enda eru þetta nátrtbuxur og já síðan segiru hann má ég þþefa af þeim og áður en ég gat sagt nokkuð þá er hann búin að beygja sig nyður og var að þefa af þeim og ég hugsaði náttúrulega bara hvað í andskotanum er hann að gera en jæja síðan segir hann já okei ég var bara að gá hvort að það væri blaut ligt af þeim því að þú sefur í þeim :S:S jæks hahahahaha ég sprakk næstum úr hlátri en allavega hann fór út og einni mínótu seinna kemur vinur hans inn og tjekkar á buxonum og segir hey þú ert í náttbuxum og ég bara já og hann spurði hvort hann mætti þefa af þeim og síðan kom á eftir neee bara djóka og hló bara hehe og eftir honum kom annar gaur vinur hans og segir hey þú ert í náttbuxum (hahaha) og þá seigi ég bara já viltu kannski þefa af þeim líka en hann hlær bara og labbar út... vááá hvað þetta var speeeeeeeeeeeeeeeeeeeees en svona er það hehehe.

ég verð að fara að græja mig fyrir heimleiðinna bless bless

°Bryndís°


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 17:20:26 / pixie

blogg!

Það er verið að hóta manni hérna að segja manni að blogga annars... uhh okei reyndar var ekkert verið að hóta mér en það var samt verið að segja mér að blogga. Í dag í skólanum missti ég mig aðeins í pakki 8| I went crazy og allir voru að hlægja að mér en þetta var samt gaman, hnoj hnoj. Ég og Benni saman í liði hahaha vorum að brillera þar og besta merki í heimi :lol: og við unnum 23-2 hahaha á móti Maríu og Steeeeeeefáni þetta var gaman og af einhverji ástæðu verð ég alltaf svo útúr flippuð þegar ég fer í pakk híhí það er gaman... mig langar í pakk.

Ég á afmæli bráðum, hvað skal gera á stóra deginum ég er nú að verða 17 ára. nee veistu ég held að ég geri ekki neitt. Ég nenni ekki að standa í því.

Ég er búin að taka þá ákvörðum að ég ætla að standa mig miklu betur á þessari önn en þeirri síðustu. Fæ ég ekki klapp fyrir því.

Ég, Karen og Arndís erum búnar að vera missa okkur í frímonotum og hádegis hléum í að horfa á one tree hill nýju seríunna sem er ekki komin til landsins og við komnar á 9 þátt og erum að deyja úr spennu ikkí dikkí og ég var að pæla hvað tekur við one tree hill þegar hann er búin? Það verður víst bara að koma í ljós.

Átti að byrja í ökuskóla 2 í síðustu viku en það kom eitthvað uppá en er samt byrjuð í ökutíma en er samt ekkert búin að keyra mikið vegna þess að kennarinn minn á heima í hveragerði :$ hvernig á maður að fara að þessu en jæja ég tel þetta nú bara vera gott ég blogga meira seinna. okiii bless

°Bryndís°


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 18:56:51 / pixie

Lest þú bloggið?

Það er nú síðasti dagurinn minn í dag í hveragerði þangatil eftir 2 vikur eða eitthvað álika. Fram að 12 Jan verð ég hja ömmu minni í grafarvoguni því að pabbi kemur ekki heim fyrr en þá og ég verð víst bara hein hjá henni ömmu í 4 daga ekkert net eða talva :S lifi ég þetta af? jæja það kemur nú bara í ljós og váááá hvað mig hlakkar til að komast heim HEIM þá meina ég Háaleitisbraut 40:haha:.

Skólinn á morgun þarf að mæta klukkan 8:10 og amma ætlar að keyra mig, hey talandi um akstur ég er byrjuð í ökuskóla II ég byrjaði í akstrinum á föstd. og byrja í bóklegu náminu á morgun jeeee það verður gaman að fá ökupróf:D ég þarf bara að mæta tvisar í bóklega og síðan ætlar ökukennarinn minn að panta próf handa mér ikidikí!:D þetta verður gaman gott fólk :P:D og verður rúntað og farið í road trip þegar þetta ökupróf kemur eru ekki allir til í það? allvega ég er farin, bless kindur!

°Bryndís°


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 23:32:45 / pixie

hmm

komiði sæl

það stittist í skólan hjá mér þríri dagar held ég en það verður sótt stundatöfluna á morgun tek rútuna klukkan eitt í bæinn en allavega langaði að setja þetta hérna upp fyrir ykkur lesendur og það er skilda að gera þetta!!!!

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

 

Bryndís kveður bless bless

 

 




» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2